Guacamole

Gott með kjúklinga Fajitas

Category: Appetizers

Cuisine: not set

Ready in 40 hours
by siggigg

Ingredients

2 stk Avocado

1 stk Lime

2 stk Tomato

1/2 stk Red onion

1 stk Green chili pepper

2 msk Fresh Coriander


Directions

Guacamole er líklega með þekktustu réttum mexíkóska eldhússins og nýtur gífurlegra vinsælda sem ídýfa og er einnig gott meðlæti með nokkrum réttum. Það er hægt að kaupa tilbúið guacamole í flestum búðum en eins og yfirleitt er raunin fær maður bestu niðurstöðuna með því að gera það sjálfur úr góðum, ferskum hráefnum. Það tekur líka bara nokkrar mínútur að útbúa það. Þetta þarf: 2 þroskaðir avocado, þreifið aðeins á þeim, þeir eiga ekki að vera grjótharðir heldur gefa aðeins eftir án þess að vera alveg linir. 1 lime 2 tómatar, fræhreinsaðir og fínsaxaðir 1/2 rauðlaukur, fínsaxaður 1 grænn chilipipar, fínsaxaður 2-3 msk af söxuðum ferskum kóríander salt Skerið avocado-ávextina í tvennt á lengdina inn að steini. Opnið ávöxtinn og takið steininn út. Rennið teskeið meðfram hýðinu til að losa ávaxtakjötið frá. Maukið avocado-inn vel með gaffli og setjið í skál. Blandið saxaða lauknum, tómötunum, chili og kóríander saman við. Pressið safan úr lime-ávextinum yfir og blandið saman. Saltið eftir smekk. Geymið í ísskáp í smástund áður en það er borið fram. Best er að útbúa guacamole sem næst þeim tíma sem maður ætlar að bjóða upp á það.

Review this recipe »

Related Recipes

Get the BigOven app!

Find any recipe, add your own, make grocery lists easily from recipes. Enter any 3 ingredients and BigOven will tell you what you can make. It's free! (4.5/5 stars)